ABBA show í London 5. - 8. október 2023 (UPPSELT)
Ferðin
Tónleikarnir fara fram föstudagskvöldið 6. október 2023.

Tónleikaröð ABBA verður í formi sýndarverutónleika í glænýrri tónleikahöll sem byggð var eingöngu fyrir þetta verkefni.
Höllin er staðsett í Queen Elizabeth Olympic Park í austurhluta London.
Á tónleikunum er 12 manna hljómsveit sem spilar undir við hlið stafræna ABBA-hópsins og flytur 22 af bestu lögum ABBA.
Lagalistinn á ABBA Voyage tónleikunum er sagður koma til með að „gleðja alla aðdáendur“.
Við verðum með sérstaka dansbása á besta stað í höllinni.
Sjá básana á myndinni hér fyrir neðan.
Þetta er geggjað fyrir skemmtilega tjútt hópa!
Þetta er hópferð okkar númer þrjú á þessa sýningu og við getum staðfest að þetta er algerlega sturluð sýning!

Innifalið í ferðinni:
Flug með Icelandair og innritaðri 23 kg tösku.
Gisting í 3 nætur með morgunverði.
Miði á tónleikana og rúta til og frá tónleikunum.
Akstur til og frá flugvelli.
Íslensk fararstjórn.
Hótelið

Holiday Inn Regent Park London
Holiday Inn London - Regent's Park er vel staðsett í miðborg London. Nálægt vinsælum ferðamannastöðum miðbæjar London. Great Portland Street og Regent's Park neðanjarðarlestarstöðvarnar eru í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð. Hótelið er nálægt A501 og í c.a. 45 mínútna akstursfjarlægð frá Heathrow flugvelli. Regent's Park er stutt frá og ekki langt í verslanir á iðandi Oxford Stræti, bæði í göngufæri frá hótelinu.
Morgunverðahlaðborð er innifalið.
Athugið að hótelið býður ekki uppá þriggja manna herbergi.
Verð
Verð frá 189.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.
Greiðslumáti
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina
með því að greiða staðfestingargjald
kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum raðgreiðslur, Netgiró og PEI.
Þá þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
ICELANDAIR

Flug með Icelandair ásamt sköttum.
23 kg innritaður farangur
10 kg handfarangur samkvæmt skilmálum Icelandair.