Liverpool - Chelsea

Ferðin

Ferðin er mánudegi til fimmtudags: 29. janúar - 1. febrúar.

Innifalið í pakkaferðinni:
Flug með ICELANDAIR ásamt sköttum.
23 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur.
Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli.
Miði á leikinn.
Akstur til og frá flugvelli.
Íslensk fararstjórn.

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvél okkar hér til vinstri.

Einnig er hægt að greiða með Netgíró.
Netgíró þarf að hringja í síma 578 9888 á milli 09-16 virka daga.

Hótelið

Novotel Paddington Village

Glænýtt 4 stjörnu hótel í Liverpool, opnað í júlí 2022.

Novotel Liverpool Paddington Village er 16 hæða nýtt hótel sem er rétt hjá iðandi og líflegum miðbæ Liverpool. 221 stílhrein og flott herbergi með öllum þeim lykilhlutum sem gera borgardvölina fullkomna.

Novotel hótelið okkar er í nýju Paddington Village klasanum og státar af aðgangi að því besta í Liverpool. Heimsæktu Anfield eða skoðaðu helgimynda arkitektúr. Hinar frægu Albert Docks eru í göngufæri, fullkominn staður til að eyða klukkutíma eða tveimur í Liverpool.

Verð

Verð frá 209.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.

Anfield sæti - Visitor

Flest sætin okkar á þessum leik eru í svæði A (merkt L1, L2 eða L10 á myndinni). Sumir Fá aðra miða en við gefum okkur út fyrir að vera með góða miða og ekki í efstu sætaröð. Anfield er þannig hannaður að það eru ekki mörg "léleg sæti" en við vitum hvar Íslendingar vilja sita :)
Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er yfirleitt lítið mál, þrír eða fimm saman getur verið erfitt og því er aldrei lofað fyrirfram. Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram. Óski farþegar eftir sérstökum sætum eða vilja kaupa uppfærslu er reynt að koma á móts við þær óskir, gegn þeim kostnaði sem það kostar en ekki hægt að lofa því 100%.

ICELANDAIR

Flug með Icelandair ásamt sköttum.
23 kg innritaður farangur
10 kg handfarangur samkvæmt skilmálum Icelandair.

Fararstjóri

Fararstjóri frá Visitor

Með í ferðinni er fararstjóri frá Visitor sem innritar farþega á hótel, dreifir miðum á leikinn/tónleikana og er farþegum innan handar með allt sem þarf.

Visitor

Hamraborg 20A

200 Kópavogur

Sölu og þjónustuver: 578 9888

Netfang: fyrirspurn@visitor.is

Hópferðir: hopar@visitor.is

Skráðu þig á póstlista visitor

© 2023, Visitor ferðaskrifstofa

/Skilmálar/Persónuverndarstefna