Liverpool - Everton (Uppselt/Biðlisti)
Ferðin
Ferðin er föstudag til mánudags: 20. - 23. október.
Leikurinn fer fram í hádeginu laugardaginn 21. október.
Innifalið í pakkaferðinni:
Flug með PLAY ásamt sköttum.
20 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur.
Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli.
Miði á leikinn.
Akstur til og frá flugvelli.
Íslensk fararstjórn.
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvél okkar hér til vinstri.
Einnig er hægt að greiða með Netgíró.
Netgíró þarf að hringja í síma 578 9888 á milli 09-16 virka daga.
Hótelið

Novotel Paddington Village
Glænýtt 4 stjörnu hótel í Liverpool, opnað í júlí 2022.
Novotel Liverpool Paddington Village er 16 hæða nýtt hótel sem er rétt hjá iðandi og líflegum miðbæ Liverpool. 221 stílhrein og flott herbergi með öllum þeim lykilhlutum sem gera borgardvölina fullkomna.
Novotel hótelið okkar er í nýju Paddington Village klasanum og státar af aðgangi að því besta í Liverpool. Heimsæktu Anfield eða skoðaðu helgimynda arkitektúr. Hinar frægu Albert Docks eru í göngufæri, fullkominn staður til að eyða klukkutíma eða tveimur í Liverpool.
Verð
Verð frá 198.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.
Anfield sæti eða Hospitality uppfærsla
Sætin okkar á þessum leik eru í svæði A (merkt L1, L2 eða L10 á myndinni).
Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er yfirleitt lítið mál, þrír eða fimm saman getur verið erfitt og því er aldrei lofað fyrirfram að það gangi upp.
Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram.
Uppfærslan sem er í boði eru miðar í Carlsberg Dugout Hospitality eða sambærilegir Hospitality miðar.

FLUGFÉLAG: PLAY

Flogið með PLAY.
INNIFALIÐ:
20 kg. innritaður farangur
Lítill handfarangur sem passar undir sæti.
Stærri handfarangurstösku þarf að greiða aukalega.
Séróskir um sætaval þarf einnig að greiða aukalega.