Magic Mike konuferð með Vilma Home
Ferðin
Kvennaferð til London að sjá hið sjúklega flotta show Magic Mike.
Vilma Home leiðir hópinn. Trylltur stemmari!
Ferðin er frá föstudeginum 10. október til mánudagsins 13. október 2025.
Verð frá kr. 209.900 á dömu miðað við tvær saman í herbergi.
Alvöru stuðferð fyrir konur sem vilja sleppa sér í gleði, glens, söng og góðum félagsskap í London.
Magic Mike showið fer fram laugardagskvöldið 11. október 2025.
18 ÁRA ALDURSTAKMARK!
Ábending til ferðalanga til Bretlands frá og með 2. apríl:
ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
Hér er allt um þetta: www.visitor.is/eta

Magic Mike Live!
Með Vilmu Home í London.
Nánar um Vilmu Ýr aka Vilma Home:
Hæ elsku frábæru konur!
Vilma heiti ég og er einstaklega skemmtilegur ferðafélagi að mati vinkvenna minna! Útlanda Vilmann er miklu skemmtilegri þegar hún er að ferðast, það er dagsatt. Ég tek lífinu létt, einstaklega jákvæð og elska ekkert meira en að kynnast fólki, hlæja saman og hafa gaman:
Húmor og stemmningkona er eitthvað af mínum einkunnarorðum.
Hef mikla unun af því að versla og ferðast og ekki verra ef það er í góðum kvennahópi.
Núna er það London Baby!
Þessi ferð er aðeins fyrir dömur á öllum aldri sem vilja koma með í helgarferð til London og fara með Vilmu á Magic Mike showið.
18 ÁRA ALDURSTAKMARK!

MAGIC MIKE LIVE, samið og leikstýrt af Channing Tatum sjálfum, er ógleymanlega skemmtilegt kvöld með snarkandi, 360 gráðu skemmtun byggð á kvikmyndunum vinsælu.
Showið er sjóðheitt. Það er fyndið.
Þetta er frábær kvöldstund sem þú hefur beðið eftir!
Ef þú ert að leita að fullkomnu stelpukvöldi eða rafmögnuðu stefnumótakvöldi skaltu ekki leita lengra en MAGIC MIKE LIVE.
Ef þú ert EKKI til í að sleppa af þér beislinu, hlæja upphátt og sjá virkilega heita fola, þá er þetta líklega ekki fyrir þig.
Það er kominn tími til að skella sér út fyrir boxið!

Flugið:
Icelandair út á Heathrow.
Icelandair heim frá Heathrow - kvöldvél.
Innifalið í ferðinni:
Flug með Icelandair og innritaðri 23 kg tösku.
Gisting í 3 nætur með morgunverði.
Miði á Magic Mike showið.
Akstur til og frá flugvelli.
Íslensk fararstjórn.
Hótelið

Thistle Hotel London Marble Arch
Thistle London Marble Arch hótelið er staðsett á besta stað í miðbæ London ef þú vilt upplifa það besta sem borgin hefur uppá að bjóða. Afskaplega snyrtilegt og nútímalegt hótel nálægt Marble Arch lestarstöðinni.
Staðsett aðeins steinsnar frá helstu verslunargötunum, eins og Oxford Street, Regent St og Mayfair, auk fjölda frægra kennileita í London, þar á meðal Harrods, Hyde Park og Buckingham Palace, eða West End Theatre District.
Eftir annasaman dag má njóta máltíðar og kokteils með vinum á barnum með útsýni yfir Oxford Street.
TripAdvisor Travaller's Choice Award 2023.
GOTT AÐ VITA:
Á hótelum eru almennt tveggja manna herbergi: Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm). Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda. Þriggja manna herbergi eru eingöngu ætluð fyrir tvo fullorðna sem sofa í sama rúmi og gest yngri en 14 ára sem sefur á beddanum. Þriggja manna herbergi eru alls ekki fyrir 3 fullorðna.
Verð
Verð frá kr. 209.900 á mann miðað við tvær saman í herbergi. Aukagjald vegna einbýlis kr. 57.900.
Greiðslumáti
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Náist ekki lágmarksþátttaka endurgreiðum við að fullu það sem þegar hefur verið greitt.
ICELANDAIR

Flug með Icelandair ásamt sköttum.
23 kg innritaður farangur
10 kg handfarangur samkvæmt skilmálum Icelandair.
Fararstjóri

SKEMMTANASTJÓRINN
Vilma Ýr aka Vilma Home heldur út skemmtilegum og einstaklega filterslausum Instagram miðli og hefur verið að bjóða konum að koma í skemmtilegar konuferðir sem hafa slegið í gegn.
Ég er 38 ára gömul, á tvo stráka á aldrinum 5 og 8 ára og á yndislegan eiginmann og jú svo var lítill labbi að bætast í fjölskylduna.
Ég er eigandi vefverslunarinnar Vilmahome.is og hef oft verið kölluð brúsakonan/ þið vitið sem vitið.
Skilaboð frá mér til þín : Lífið er núna!
Lífið er of stutt til að ofhugsa hlutina og eitt í viðbót:
You do you 🙌