Andre Rieu í Maastricht 11. - 14. júlí (4 SÆTI LAUS)

Ferðin

Ferðin er frá fimmtudeginum 11. júlí til sunnudagsins 14. júlí 2024.

Aukasæti í sölu: ATHUGIÐ AÐEINS HÆGT AÐ FÁ HERBERGI SEM HEITA Double room without daylight með hjónarúmi!


Tónleikarnir með Andre Rieu fara fram á hinu rómantíska torgi Vrijthof í miðbæ Maastricht en torgið er umlukið fjölda veitingastaða, verslana og glæsibygginga. Þar koma fram ásamt Andre, Johann Strauss Orchestra og margir gestir og jafnvel óvæntir gestir. Prógrammið hans Andre er aldrei það sama ár eftir ár, það er hans metnaður að koma stöðugt á óvart.

Þessa mynd hér fyrir neðan tók fararstjóri okkar á tónleikunum í sumar sem leið 2023. Flott sæti og mikil stemning og stuð á staðnum.


DAGSKRÁ FERÐARINNAR

Fimtudagurinn 11. júlí
Icelandair FI-554.
Flogið til Brussel kl. 07:40 frá Keflavík og lent kl. 12:55 að staðartíma.
Rúta í klukkutíma til Maastricht. (Rúta innifalin).
Tékkað inn og komið sér fyrir.
Frjálst kvöld.

Föstudagurinn 12. júlí
Frjáls dagur.
Tónleikarnir með Andre Rieu um kvöldið.
Það er um 10-15 mín gangur frá hóteli að tónleikatorginu.
Þeir sem eiga erfitt með gang þá er hægt að taka leigubíla sem stoppa mjög nálægt torginu og þaðan er auðvelt að labba.

Laugardagur 13. júlí
Fyrir hádegi:
Tveggja tíma bátsferð um ánna Meuse eða Maas. (Innifalið)
Eftir hádegi:
Göngutúr um miðbæinn með leiðsögn á ensku.
Gangan tekur um einn og hálfan klukkutíma. (Seld aukalega)

Sunnudagur 14. júlí
Heimferðardagur.
Rúta til Brussel. (Rúta innifalin)
Icelandair FI-555
Í loftið kl. 14:00.
Lent á Íslandi kl. 15:15.

Aukasæti í sölu: ATHUGIÐ AÐEINS HÆGT AÐ FÁ HERBERGI SEM HEITA Double room without daylight með hjónarúmi!

Hótelið

Designhotel Maastricht - No Daylight Rooms

Designhotel er 4-stjörnu hótel, vel staðsett og steinsnar frá miðbæ Maastrich.

Þessi aukaherbergi í sölu núna eru aðeins fyrir hjón/pör og kallast:
Double room without daylight.

Það þýðir að það eru ekki gluggar á herbergjunum með dagsbirtu. Að öðru leiti alveg jafn hugguleg og fín herbergi og hvert annað á hótelinu. Við viljum aðeins að þetta sé tekið fram og komi engum á óvart þegar á hólminn er komið. Það er ekkert öðruvísi við þessi herbergi annað en gluggaleysið.

Design Hotel Maastricht er svokallað Boutique hótel og ekkert herbergi er nákvæmlega eins. Hvert og eitt einasta herbergi er sérhannað.

Hótelið í hluta borgarinnar sem kallast Wyck og þaðan er stutt í allt það helsta sem borgin hefur uppá að bjóða - sannkallaður miðpunktur.

Hótelið er 105 herbergja og ekkert þeirra eins en í öllum þeirra er hugað til hins ítrasta að öllum smáatriðum.

Innan við 10 mínútna gangur á Vrijthof-torgið þar sem tónleikarnir fara fram utanhúss og á leiðinni eru tugir veitingastaða, verslana og iðandi mannlíf.

Morgunverður er innifalinn.

Skoða hótelið á netinu: Designhotel

Verð

Verð frá 219.900 á mann miðað við 2 saman í No Daylight herbergi

Greiðslumáti

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.

Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.

Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.

Maastricht - sætin okkar

Sætin okkar á tónleikunum eru á mjög góðum stað miðsvæðis á torginu.

Á skýringarmyndinni eru sætin okkar í svæði B2.

ICELANDAIR

Flug með Icelandair ásamt sköttum.
23 kg innritaður farangur
10 kg handfarangur samkvæmt skilmálum Icelandair.

Fararstjóri

Hafdís Viggósdóttir

Hópadeild - Sala/Ráðgjöf hafdis@visitor.is Sími 578 9888 Hafdís hefur búið víða um heim og verið fararstjóri í mörgum löndum. Góð og traust reynsla.

Visitor

Hamraborg 20A

200 Kópavogur

Sölu og þjónustuver: 578 9888

Netfang: fyrirspurn@visitor.is

Hópferðir: hopar@visitor.is

Skráðu þig á póstlista visitor

© 2024, Visitor ferðaskrifstofa

/Skilmálar/Persónuverndarstefna