Brestur x Ofurkona í orlofi

Ferðin

Sjö daga ferð til Tossa de Mar á Spáni fyrir allar konur sem vilja kynnast sér betur, fara í endurnærandi frí og efla sína styrkleika. Tossa de Mar er fallegur strandbær sem býður upp á mikla náttúrufegurð, hreinar strendur og tæran sjó þar sem dásamlegt er að njóta líðandi stundar og hvíla sig frá amstri hversdagsleikans. Frábærir veitingastaðir í göngufæri við hótelið og hægt er að fara í stuttar siglingar á bát eða kajak.



Bjargey Ingólfsdóttir, fararstjóri, Yin Yoga kennari og Cranio Sacral meðferðaraðili heldur úti hlaðvarpinu Ofurkona í orlofi og hefur haldið sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur um árabil og farið með fjölda hópa til Tossa de Mar. Bjargey sameinar hér krafta sína með Birnu Sif Kristínardóttur markþjálfa og Bryndísi Ottesen ráðgjafa sem halda úti hlaðvarpinu Bresti, um konur og ADHD. Bjargey, Birna Sif og Bryndís eru allar konur með ADHD og munu í ferðinni deila eigin reynslu af því að líta á það sem styrkleika í sínu lífi. Þær eru sammála um að það er frelsandi tilfinning að taka sjálfa sig í sátt og horfa á ADHD sem ofurkraft.

Í ferðinni verður boðið upp á námskeiðið “Fegurðin í brestunum” en það fer fram í vinnustofum með skemmtilegri fræðslu og verkefnum. Þátttakendur fá dagbók sem fylgir námskeiðinu og hægt er að nota áfram eftir ferðina.

Birna Sif og Bryndís byggja á reynslu sinni að hafa haldið námskeiðið “Að grafa grímuna” fyrir konur með ADHD en það getur verið snúið að tilheyra samfélagi sem gerir ekki ráð fyrir fjölbreytileika heilans og er það engin undantekning fyrir einstaklinga með ADHD sem upplifa oftar en ekki að tilfinningar þeirra og skynjun sé ekki í takt við flesta.

Í ferðinni gefst gott tækifæri til að hvílast, kynnast sjálfri sér betur í skemmtilegum félagsskap og tengjast með hugleiðslu, Yin Yoga, öndunaræfingum og náttúrumeðferð á ströndinni. Allar konur sem vilja efla styrkleika sína í skemmtilegum og nærandi félagsskap eru velkomnar í ferðina, það er engin skylda að vera með ADHD eða ADHD greiningu til að fara með.

Dagskrá - birt með fyrirvara um breytingar

16. september - mánudagur

Komudagur. Flogið er með PLAY OG614 til Barcelona kl.14:50 - lent í Barcelona 21:10.

Farþegar verða keyrðir frá flugvellinum til Tossa de Mar en aksturinn tekur eina og hálfa klst.

Við komu á Hótel Gran Reymar er innritun á herbergi og létt kvöldhressing.

17. september - þriðjudagur
09:00-10:00 Morgunverður
10:30-12:00 Samvera á ströndinni.
Bjargey, Birna Sif og Bryndís segja frá fyrirkomulagi ferðarinnar og hópurinn kynnist.

Frjáls dagur til að hvílast eftir ferðalagið og skoða umhverfið.

Sameiginlegur kvöldverður kl 20:00 fyrir þær sem vilja á notalegum stað í miðbænum. Hver og ein greiðir fyrir sig í mat og drykk.

18. september - miðvikudagur
09:00-10:00 Morgunverður
10:00-11:00 Yin Yoga á ströndinni.
Bjargey leiðir hópinn í töfrandi ferðalag Yin Yoga. Þægilegar æfingar með áherslu á öndun, teygjur og slökun með vellíðan að leiðarljósi.
12:00-13:30 Námskeiðið “Fegurðin í brestunum” í skemmtilegri vinnustofu á hótelinu. Hvernig getum við eflt styrkleika okkar og séð fegurðina í brestunum.
13:30-14:30 Hádegisverður á hótelinu.

19. september - fimmtudagur
09:00-10:00 Morgunverður
10:00-11:30 Samvera á ströndinni.
Spjöllum saman um lærdóm gærdagsins á námskeiðinu. Tengjumst okkur sjálfum og náttúrunni sem umlykur okkur, hugleiðsla, létt öndunaræfing og sundsprettur í sjónum fyrir þær sem vilja í lokin.

Frjáls tími eftir hádegi.

20. september - föstudagur
Frjáls dagur til að slaka á og njóta lífsins í sólinni.

21. september - laugardagur
09:00-10:00 Morgunverður

11:00-12:00 Námskeiðið “Fegurðin í brestunum”.
Hvers vegna er mikilvægt að næra eigin gildi og lifa lífinu á eigin forsendum. ADHD er ofurkraftur ef þú ert tilbúin að lifa í sátt með sjálfri þér.

12:15-13:30 Innra ferðalag öndunaræfing og tónheilun sem leiðir okkur inn í undirmeðvitundina. Skoðum brestina og alla fegurðina sem býr innra með okkur.

13:30 Samvera og stutt spjall eftir námskeið og öndunaræfingu.

Frjáls tími eftir námskeið.

22. september - sunnudagur
09:00-10:00 Morgunverður

10:00-11:00 Yin Yoga og hugleiðsla
á ströndinni. Æfingar með áherslu á öndun, teygjur og slökun með vellíðan að leiðarljósi.

11:00-12:00 Samvera og spjall

Frjáls tími eftir hádegi.

20:00 Sameiginlegur kvöldverður síðasta kvöldið okkar saman á huggulegum veitingastað í bænum. Hver og ein greiðir fyrir sig í mat og drykk.

23. September - mánudagur
09:00-10:00 Morgunverður

Heimferðardagur:
Útritun af herbergjum kl.12:00 en frjálst er að nota sundlaugargarðinn á hótelinu þar til farið er út á flugvöll um kl. 17:00. Rúta til Barcelona og flug til KEF OG615 kl.22:10. Lending í KEF 00:45 (eftir miðnætti).


Innifalið í verði ferðar:
Flug fram og til baka, 20 kg taska
Gisting í sjö nætur á Gran Reymar
Hálft fæði – morgunverður og val um hádegis- eða kvöldverð
Námskeiðið “Fegurðin í brestunum” og dagbók
Yin Yoga tímar og hugleiðsla á ströndinni
Öndunaræfing og tónheilun
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Íslensk fararstjórn

ATH. sérstakur gistiskattur er á öllum hótelgistingum og þarf hver farþegi að greiða 1 € pr. mann pr. nótt og greiðist þetta beint til hótelsins og því ekki innifalið í verði ferðarinnar.

Lágmarksþátttaka er 15 manns og áskilur Visitor sér rétt til að fella niður ferðina náist ekki sú þátttaka.

Hótelið

Gran Hotel Reymar

Einn af vinsælustu kostunum á Tossa de Mar.
Þetta hótel við sjávarsíðuna er við Playa de la Mar Menuda-ströndinni. Hótelið er með útisundlaug, heitan pott, heilsulind, tennisvelli og býður upp á víðáttumikið útsýni yfir Tossa de Mar og kastalann.

Á heilsulind hótelsins má finna nuddpott, vatnsmeðferðir, tyrkneskt bað, gufubað og úrval meðferða og nuddmeðferða. Greiða þarf aukalega fyrir aðgang að heilsulindinni.

Herbergin á Gran Hotel Reymar eru með loftkælingu, svalir og sérbaðherbergi. Öll eru þau með flatskjá með gervihnattarásum, minibar og ókeypis WiFi. Öryggishólf er í boði gegn aukagjaldi. Gran Hotel Reymar býður einnig upp á 3 svefnherbergja villur með stofu, borðkrók, fullbúnu eldhúsi og verönd með sjávarútsýni.

Á hótelinu er rómantíski veitingastaðurinn Illa, sem býður upp á Miðjarðarhafs- og alþjóðalega à la carte rétti. Þaðan er frábært útsýni, bæði innan frá veitingastaðnum og á veröndinni. Panta þarf borð fyrirfram. Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð og matreiðslusýningar.

Barirnir við ströndina og sundlaugarbakkann á Gran Hotel Reymar framreiða hressandi kokteila og auk þess býður hótelið upp á borðtennisborð og körfuboltavöll.

Tossa-kastalinn og Faro de Tossa-vitinn eru í 10 mínútna göngufæri ef gengið er meðfram aðalgöngusvæðinu við sjávarsíðuna, en þar er fjöldi verslana, bara og veitingahúsa.

Verð

Verð frá kr. 279.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi

Greiðslumáti

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.

Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.

Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.

FLUGFÉLAG: PLAY


Flogið með PLAY.

INNIFALIÐ:
20 kg. innritaður farangur
Lítill handfarangur sem passar undir sæti.
Stærri handfarangurstösku þarf að greiða aukalega.
Séróskir um sætaval þarf einnig að greiða aukalega.

Fararstjórar

Bjargey Ingólfsdóttir, fararstjóri og fyrirlesari

Bjargey er Yin Yoga kennari, Cranio Sacral meðferðaraðili og með B.A. próf í félagsráðgjöf. Hún heldur úti hlaðvarpinu Ofurkona í orlofi þar sem hún spjallar við skemmtilegt fólk sem hefur elt ástríðuna í sínu lífi og er hvatning og innblástur fyrir aðra. Bjargey elskar að vera berfætt á ströndinni að skoða fallega steina og vera í sjósundi en hún ætlar að flytja til Tossa de Mar þegar hún verður stór enda búin að fara með hópa af konum þangað nokkrum sinnum á ári í 7 ár. Bjargey hefur tileinkað sér heilbrigðan lífsstíl frá því að hún missti heilsuna í kjölfar erfiðra áfalla og örmögnunar 2012 og síðan þá miðlað sinni vegferð að betri heilsu og líðan með fjölda fyrirlestra, námskeiða og ráðgjöf. Á námskeiðinu mun Bjargey miðla sinni reynslu af því að vera með ADHD og hvernig hún notar aðferðir náttúrunnar til að vinna með taugakerfið. Bjargey kennir Yin Yoga í ferðinni sem er frábær bandvefslosun og slökun fyrir líkama og sál. Einnig mun Bjargey leiða hópinn í töfrandi ferðalag öndunar og hugleiðslu og fer kennslan að mestu fram úti í náttúrunni í Tossa de Mar.

Birna Sif Kristínardóttir

Birna Sif er með meistaragráðu í Alþjóðaviðskiptum og markaðsfræðum en breytti um stefnu í lífinu í kjölfar örmögnunar í byrjun árs 2021 og fékk þá meðal annars ADHD greiningu. Upp frá því lærði Birna Sif markþjálfun og setti heilsuna í fyrsta sæti samhliða því að kynnast sjálfri sér upp á nýtt út frá eigin forsendum. Út frá því varð hlaðvarpið Brestur til þar sem athyglin er sett á vitundarvakningu um ADHD hjá konum. Birna Sif er með mikinn mótþróa og gerir ekkert í lífinu sem henni finnst ekki skipta máli og henni þykir ekki skemmtilegt. Á námskeiðinu fer Birna yfir þann tilfinningavanda sem getur fylgt því að vera ekki þátttakandi í eigin lífi. Hún verður einnig með vinnustofu þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast sér betur með það að markmiði að átta sig á hvað þeir standa fyrir og af hverju það er mikilvægt að næra eigin gildi, efla styrkleika sína og lifa lífinu á eigin forsendum.

Bryndís Ottesen

Bryndís eða Dísa eins og hún er oftast kölluð, heldur úti hlaðvarpinu Brestur með Birnu Sif sem fjallar um konur og ADHD, en hún er með B.A. próf í stjórnmálafræði og starfar sem ráðgjafi. Dísa þurfti að kynnast sér upp á nýtt eftir að hafa fengið ADHD greiningu 30 ára gömul og hefur síðan þá kynnt sér mikilvægi þess að fá greiningu, mismunandi birtingarmyndir ADHD á milli kynja og brennur fyrir ADHD vitundarvakningu í samfélaginu. Dísa er kona sem þolir ekki óþarfa vesen, elskar að prjóna og er með ofvirkasta heila norðan Alpafjalla. Hún mun á námskeiðinu kenna mikilvægi þess að kynnast sér á sínum forsendum, hvaða tækifæri opnast þegar konur fella ADHD grímuna og taka ákvörðun um að einblína frekar á styrkleika sína en það sem hefur hamlað þeim enda er ADHD ofurkraftur ef við leyfum okkur að horfa á það þannig.

Visitor

Hamraborg 20A

200 Kópavogur

Sölu og þjónustuver: 578 9888

Netfang: fyrirspurn@visitor.is

Hópferðir: hopar@visitor.is

Skráðu þig á póstlista visitor

© 2024, Visitor ferðaskrifstofa

/Skilmálar/Persónuverndarstefna