Heilsuferð til Tenerife 15. - 22. október 2024

Ferðin



Heilsuferð þar sem þú ert í fyrsta sæti og nýtur ferðalagsins sem þú skapar þér. Þessi ferð byggist mikið uppá heilsu-markþjálfun og innri skoðun. Einnig innri ró með yoga og göngutúrum.

Þú færð krefjandi verkefni bæði í hóp og sem einstaklingur.

Einnig munum við kryfja þitt markmið sem þú vilt betrumbæta og finna þín verkfæri til að ná þangað.

DAGSKRÁ

Dagur 1
Ferðast til Tenerife, móttaka og akstur á hótelið.
Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

Dagur 2
Fyrirlestur, kynning og verkefni "hafðu heilsuna með þér".
Hatha yoga.

Dagur 3
Fyrirlestur um sjálfsmynd og "hvar er ég i dag?".
Markþjàlfun og verkefni.
Hatha yoga.
Göngutúr seinnipartinn.

Dagur 4
Fyrirlestur um næringu, markþjálfun og verkefni.
Þrekhringur með eigin líkamsþyngd.
Tækjasalur seinnipartinn.

Dagur 5
Fyrirlestur um hreyfingu og markmið.
Markþjálfun og verkefni.
Hatha kraft yoga með hugleiðslu.
Tækjasalur seinnipartinn.

Dagur 6
Fyrirlestur um skipulag, halda rútínu og sjá árangur.
Markþjálfun og verkefni.
MRL tími.
Frjálst val: mæting i tækjasal.
Sameiginlegur kvöldverður.

Dagur 7
Heimferð og frjáls dagur.

Það sem þú færð við heimkomu
Tveggja vikna fjarþjálfun.
60 mín tími í markþjálfun.
Sér hópur á Facebook fyrir fræðslu og uppskriftir.
Rafbókin "Þar sem hugur og líkami mætast".

Ýmis stéttarfélög veita styrki til félagsmanna sinna fyrir námskeið og fræðslu.

Kynntu þér réttindi og styrkveitingar sem þitt stéttarfélag veitir og athugaðu hvort það nái yfir þessa ferð.

Ummæli ánægðs viðskiptavinar:
"
Heilsuferðin hennar Siggu var mjög skemmtileg og vel skipulögð. Fjölbreyttar æfingar bæði í sal og tækjasal. Allir gátu tekið þátt sama í hvernig formi viðkomandi var. Ótrúlega góð leið til að kynnast nýju fólki, slappa af og rækta heilsuna."

Tigotan Hotel Tenerife

Tigotan 4* hótelið er staðsett í hjarta Playa de las Américas á Tenerife. Rosalega vinsælt meða Íslendinga. Tigotan er Adults only sem þýðir að það er aðeins fyrir gesti sem eru 18 ára og eldri. Þetta stórbrotna og nútímalega hótel býður upp á margs konar upplifun t.d. frábæra "infinity" sundlaug uppi á þaki, verönd með útsýni yfir Atlantshafið og flott herbergi sem eru hönnuð fyrir kröfuharða ferðamenn.

Verð

Verð frá 239.900 miðað við 2 saman í herbergi

Greiðslumáti

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.

Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.

Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.

Fararstjórar

Sigga Kr.

Sigga Kr. er Njarðvíkingur sem átti og rak líkamsræktarstöðina Perluna í Keflavík frá 1998 - 2008. Hún er lærður þolfimikennari, einkaþjálfari, Hatha Yoga kennari, Markþjálfi og spinning kennari. Kenndi 5 Les Mills kerfi og Pump FX og var kennari í Fusion Fitness Academy.

Guðrún St. Svavarsdóttir

Verkefnastjóri Íþrótta- og keppnisferða Hópadeild

gudrun@visitor.is578 9888
Visitor

Hamraborg 20A

200 Kópavogur

Sölu og þjónustuver: 578 9888

Netfang: fyrirspurn@visitor.is

Hópferðir: hopar@visitor.is

Skráðu þig á póstlista visitor

© 2024, Visitor ferðaskrifstofa

/Skilmálar/Persónuverndarstefna