Liverpool - Tottenham (UPPSELT)

Ferðin

FJÓRAR NÆTUR - GEGGJAÐ AÐ BÆTA VIÐ GOLFSETTI :)
Ferðin er frá föstudeginum 3. maí til þriðjudagsins 7. maí 2024

Leikurinn fer fram sunnudaginn 5. maí á Anfield kl. 15:30.

Innifalið í pakkaferðinni:
Flug með ICELANDAIR ásamt sköttum.
23 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur.
Gisting í 4 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli.
Miði á leikinn.
Akstur til og frá flugvelli.
Íslensk fararstjórn.

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvél okkar hér til vinstri.

Einnig er hægt að greiða með Netgíró.
Netgíró þarf að hringja í síma 578 9888 á milli 09-16 virka daga.

Verð pr. golfsett með Icelandair kostar kr. 9.400 aukalega.

Hótelið

Leonardo Hotel Liverpool (áður Jurys Inn Liverpool)

Jurys Inn heitir nú: Leonardo Hotel Liverpool

Gist er á glæsilegu og vel staðsettu Leonardo Hotel Liverpool sem er 4 stjörnu hótel og er beint á móti Echo Arena tónleikahöllinni. Frá hótelinu er stutt yfir á hafnarsvæðið "Albert Docks" þar sem finna má marga góða veitingarstaði, fjölbreytta pöbba, söfn og verslanir. Frá hótelinu er 10 mínútna rölt að Central lestastöðinni.

Morgunverður er innifalinn.

Björt, nútímaleg svefnherbergi með góðum rúmum, stórum flatskjásjónvörpum og rúmgóðu baðherbergi ásamt te- og kaffiaðstöðu.
Ókeypis Wi-Fi aðgangur og morgunverðarhlaðborð innifalið.

Leonardo Hotel Liverpool
31 Keel Wharf, Liverpool, L3 4FN
Tel: +44 151 244 3777

Verð

Verð frá 209.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.

Anfield sæti - Visitor

Flest sætin okkar á þessum leik eru í svæði A (merkt L1, L2 eða L10 á myndinni) sum sætin eru fyrir aftan mark í nýju stúkunni. Við viljum meina að við séum með góða miða. Anfield er þannig hannaður að það eru ekki mörg "léleg sæti".
Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er yfirleitt lítið mál, þrír eða fimm saman getur verið erfitt og því er aldrei lofað fyrirfram. Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram. Óski farþegar eftir sérstökum sætum eða vilja kaupa uppfærslu er reynt að koma á móts við þær óskir, gegn þeim kostnaði sem það kostar en ekki hægt að lofa því 100%.

ICELANDAIR

Flug með Icelandair ásamt sköttum.
23 kg innritaður farangur
10 kg handfarangur samkvæmt skilmálum Icelandair.

Fararstjóri

Fararstjóri frá Visitor

Með í ferðinni er fararstjóri frá Visitor sem innritar farþega á hótel, dreifir miðum á leikinn/tónleikana og er farþegum innan handar með allt sem þarf.

Visitor

Hamraborg 20A

200 Kópavogur

Sölu og þjónustuver: 578 9888

Netfang: fyrirspurn@visitor.is

Hópferðir: hopar@visitor.is

Skráðu þig á póstlista visitor

© 2024, Visitor ferðaskrifstofa

/Skilmálar/Persónuverndarstefna