Hamingja og heilsa í Tossa de Mar

Ferðin

Eingöngu 18 sæti eru í boði í þessa ferð.


Hamingja og heilsa er sjö daga endurnærandi ferð fyrir allar konur sem vilja efla sinn innri styrk og njóta slökunar í fallega strandbænum Tossa de Mar á Spáni sem er umvafinn stórkostlegri náttúru þar sem hægt er að njóta sólar og synda í tærum sjó.

Bjargey fararstjóri ferðarinnar hefur mikla ástríðu fyrir því að valdefla konur, fræða um heilsu og kenna heildrænar aðferðir við að auka vellíðan og hamingju en hún hefur farið með hópa af konum til Tossa de Mar um árabil þar sem hún kennir námskeiðið sitt Leiðina að hjartanu.

Bjargey notar náttúrumeðferð og sálvefræna losun í kennslu á námskeiðinu en hún mun leiða hugleiðslur á ströndinni ásamt því að vera með fræðslu í vinnustofum sem fara fram á hótelinu og úti í náttúrunni.

Í ferðinni gefst gott tækifæri til að hvílast, næra líkama og sál í fallegu umhverfi og kynnast öðrum frábærum konum sem vilja fara leiðina að hjartanu.

Gist verður á Gran Hotel Reymar sem er staðsett við ströndina, en frá hótelinu er einstaklega fallegt útsýni yfir bæinn og kastalann í Tossa de Mar.

Eingöngu 12 sæti eru í boði í þessa ferð.

Dagskrá, birt með fyrirvara á breytingu.

20. maí - mánudagur

Komudagur.

Flogið er með PLAY til Barcelona brottför í KEF kl.14:50.
Lending í BCN 21:10.
Flugnúmer OG614.
Ekið til Tossa de Mar en aksturinn tekur eina og hálfa klst.
Við komuna á hótelið bíður kvöldhressing.

21. maí - þriðjudagur
10:00-11:00 Slökun og hugleiðsla á ströndinni.
Bjargey segir frá fyrirkomulagi námskeiðsins og hópurinn kynnist.
Frjáls dagur til að hvílast eftir ferðalagið og skoða umhverfið.
Sameiginlegur kvöldverður kl 20:00 á Hótel Gran Reymar.

22. maí - miðvikudagur
Leiðin að hjartanu - fyrirlestrar og vinnustofa á hótelinu kl. 10:30-13:00.
Tenging hugar og hjarta.
Náttúrumeðferð og vellíðan.
Sameiginlegur hádegisverður á hótelinu eftir vinnustofuna.
Frjáls tími eftir hádegi.

23. maí - fimmtudagur
Samvera, hugleiðsla og slökun kl. 10:00-11:30 á ströndinni.
16:00 Gönguferð í kastalann þar sem gengið er upp að útsýnispalli og hægt að sjá stórbrotið útsýni yfir Tossa de Mar og hafið. Gönguferðin er róleg ganga þar sem við stoppum nokkrum sinnum til að njóta útsýnis.

24. maí - föstudagur
Frjáls dagur til að slaka á og njóta lífsins í sólinni.
Þær sem vilja geta farið saman í leigubíl til Girona þar sem hægt er að finna verslunarmiðstöð og úrval minni verslana eða skoða borgina sem er einstaklega falleg.
Hægt er að fara í bátsferð frá ströndinni í Tossa de Mar inn í litlu víkurnar Cala Bona og Cala Pola, en þar er hægt að synda í tærum sjó og snorkla.
Bjargey getur aðstoðað við skipulagningu á ferð til Girona eða bátsferð fyrir þær sem vilja.

25. maí - laugardagur
Leiðin að hjartanu - fyrirlestrar og vinnustofa á hótelinu kl. 10:30-13:00.
Hvernig verða draumar okkar að veruleika?
Að lifa lífinu til fulls í sátt og vellíðan.
Sameiginlegur hádegisverður á hótelinu eftir vinnustofuna.
Frjáls tími eftir hádegi.

26. maí - sunnudagur
Samvera og hugleiðsla á ströndinni kl. 10:00 – 11:30.
Frjáls tími yfir daginn.

18:00 Sameiginlegur kvöldverður síðasta kvöldið okkar saman í miðbænum á huggulegum veitingastað.
Hver og ein greiðir fyrir sig í mat og drykk, gott er að hafa Evrur í seðlum fyrir þessa sameiginlegu ferð svo það sé auðvelt að greiða reikninginn í lokin.

27. maí - mánudagur
Farið er út á flugvöll seinnipartinn.
Flogið frá Barcelona er kl.22:10 og lending í Keflavík 00:45 eftir miðnætti.
Flugnúmer OG615.



Verð frá kr. 259.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.

Verð í einstaklingsherbergi er frá kr. 304.800.
Hægt er að uppfæra sig í herbergi með sjávarsýn.

Innifalið í verði:
Flug með PLAY fram og til baka
Innritaður farangur 20 kg.
Íslensk fararstjórn
Akstur til og frá flugvelli að hóteli úti á Spáni
Gisting í 7 nætur á Gran Hotel Reymar
Hálft fæði - morgunverður og annað hvort hádegis- eða kvöldverður alla dagana sem gist er.
Gönguferð 2 klst.
Dagbókin Hamingjubók
Hugleiðsla og slökun á ströndinni 3 skipti samtals 4,5 klst.
Námskeið og vinnustofur 2,5 klst. tvö skipti - samtals 5 klst.

ATH sérstakur gistiskattur er á öllum hótelgistingum og þarf hver farþegi að greiða €1 pr. mann pr. nótt og greiðist þetta beint til hótelsins og því ekki innifalið í verði ferðarinnar.

Kynntu þér réttindi og styrkveitingar sem þitt stéttarfélag veitir og athugaðu hvort það nái yfir þessa ferð.

Hótelið

Gran Hotel Reymar

Einn af vinsælustu kostunum á Tossa de Mar.
Þetta hótel við sjávarsíðuna er við Playa de la Mar Menuda-ströndinni. Hótelið er með útisundlaug, heitan pott, heilsulind, tennisvelli og býður upp á víðáttumikið útsýni yfir Tossa de Mar og kastalann.

Á heilsulind hótelsins má finna nuddpott, vatnsmeðferðir, tyrkneskt bað, gufubað og úrval meðferða og nuddmeðferða. Greiða þarf aukalega fyrir aðgang að heilsulindinni.

Herbergin á Gran Hotel Reymar eru með loftkælingu, svalir og sérbaðherbergi. Öll eru þau með flatskjá með gervihnattarásum, minibar og ókeypis WiFi. Öryggishólf er í boði gegn aukagjaldi. Gran Hotel Reymar býður einnig upp á 3 svefnherbergja villur með stofu, borðkrók, fullbúnu eldhúsi og verönd með sjávarútsýni.

Á hótelinu er rómantíski veitingastaðurinn Illa, sem býður upp á Miðjarðarhafs- og alþjóðalega à la carte rétti. Þaðan er frábært útsýni, bæði innan frá veitingastaðnum og á veröndinni. Panta þarf borð fyrirfram. Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð og matreiðslusýningar.

Barirnir við ströndina og sundlaugarbakkann á Gran Hotel Reymar framreiða hressandi kokteila og auk þess býður hótelið upp á borðtennisborð og körfuboltavöll.

Tossa-kastalinn og Faro de Tossa-vitinn eru í 10 mínútna göngufæri ef gengið er meðfram aðalgöngusvæðinu við sjávarsíðuna, en þar er fjöldi verslana, bara og veitingahúsa.

Verð

Verð frá kr. 259.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi

Greiðslumáti

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.

Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.

Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.

Fararstjóri

Bjargey Ingólfsdóttir, fararstjóri og fyrirlesari

Bjargey er Yin Yoga kennari, Cranio Sacral meðferðaraðili og með B.A. próf í félagsráðgjöf. Hún heldur úti hlaðvarpinu Ofurkona í orlofi þar sem hún spjallar við skemmtilegt fólk sem hefur elt ástríðuna í sínu lífi og er hvatning og innblástur fyrir aðra. Bjargey elskar að vera berfætt á ströndinni að skoða fallega steina og vera í sjósundi en hún ætlar að flytja til Tossa de Mar þegar hún verður stór enda búin að fara með hópa af konum þangað nokkrum sinnum á ári í 7 ár. Bjargey hefur tileinkað sér heilbrigðan lífsstíl frá því að hún missti heilsuna í kjölfar erfiðra áfalla og örmögnunar 2012 og síðan þá miðlað sinni vegferð að betri heilsu og líðan með fjölda fyrirlestra, námskeiða og ráðgjöf. Á námskeiðinu mun Bjargey miðla sinni reynslu af því að vera með ADHD og hvernig hún notar aðferðir náttúrunnar til að vinna með taugakerfið. Bjargey kennir Yin Yoga í ferðinni sem er frábær bandvefslosun og slökun fyrir líkama og sál. Einnig mun Bjargey leiða hópinn í töfrandi ferðalag öndunar og hugleiðslu og fer kennslan að mestu fram úti í náttúrunni í Tossa de Mar.

Visitor

Hamraborg 20A

200 Kópavogur

Sölu og þjónustuver: 578 9888

Netfang: fyrirspurn@visitor.is

Hópferðir: hopar@visitor.is

Skráðu þig á póstlista visitor

© 2024, Visitor ferðaskrifstofa

/Skilmálar/Persónuverndarstefna