ABBA show í London apríl 2025

Ferðin

Tónleikarnir fara fram föstudagskvöldið 11. apríl 2025.

ABBA Voyage sýningin er í formi sýnd­ar­veru­tón­leika í glænýrri tónleikahöll sem byggð var eingöngu fyrir þetta verkefni.

Höllin er staðsett í Queen Elizabeth Olympic Park í austurhluta London.

Á tónleikunum er 12 manna hljómsveit sem spilar undir við hlið stafræna ABBA-hópsins og flytur 22 af bestu og vinsælustu lögum ABBA.

Athugið að sýningin er 90 mínútur og EKKERT hlé en það má skreppa fram og sækja sér hressingu sem þá er afgreidd í plastglasi og má taka með inn í sal.

Þetta er geggjað fyrir skemmtilega tjútt hópa!

Þetta er hópferð okkar númer sjö á þessa sýningu og við getum staðfest að þetta er sturluð sýning - allar fyrri ferðir okkar hafa verið uppseldar!

Sætin okkar í þessari ferð eru í svæði G og J á þessari skýringarmynd.


Flugið:
Icelandair fram og til baka á Heathrow.

Innifalið í ferðinni:
Flug með Icelandair og innritaðri 23 kg tösku.
Gisting í 3 nætur með morgunverði.
Miði á tónleikana og rúta til og frá tónleikunum.
Akstur til og frá flugvelli.
Íslensk fararstjórn.

Hótelið

Thistle Hotel London Marble Arch

Thistle London Marble Arch hótelið er staðsett á besta stað í miðbæ London ef þú vilt upplifa það besta sem borgin hefur uppá að bjóða.

Afskaplega snyrtilegt og nútímalegt hótel nálægt Marble Arch lestarstöðinni.
Staðsett aðeins steinsnar frá helstu verslunargötunum, eins og Oxford Street, Regent St og Mayfair, auk fjölda frægra kennileita í London, þar á meðal Harrods, Hyde Park og Buckingham Palace, eða West End Theatre District.
Eftir annasaman dag má njóta máltíðar og kokteils með vinum á barnum okkar með útsýni yfir Oxford Street.
TripAdvisor Travaller's Choice Award 2023.

Verð

Verð frá 189.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.

Greiðslumáti

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.

Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.

Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Náist ekki lágmarksþátttaka endurgreiðum við að fullu það sem þegar hefur verið greitt.

ICELANDAIR

Flug með Icelandair ásamt sköttum.
23 kg innritaður farangur
10 kg handfarangur samkvæmt skilmálum Icelandair.

Fararstjóri

Guðrún St. Svavarsdóttir

Verkefnastjóri Íþrótta- og keppnisferða Hópadeild

gudrun@visitor.is578 9888
Visitor

Hamraborg 20A

200 Kópavogur

Sölu og þjónustuver: 578 9888

Netfang: fyrirspurn@visitor.is

Hópferðir: hopar@visitor.is

Skráðu þig á póstlista visitor

© 2024, Visitor ferðaskrifstofa

/Skilmálar/Persónuverndarstefna