Aðventu- og jólatónleikar Andre Rieu 2025

Ferðin

Ferðin er frá fimmtudeginum 11. desember til sunnudagsins 14. desember 2025.

Á þessum árstíma er mjög jólalegt um að litast í Maastricht, fæðingarborg Andre Rieu og á stóra torginu, Vrijthof, er glæsilegur jólamarkaður sem er í göngufæri frá hótelinu okkar. Á þessu torgi, Vrijthof, heldur Andre Rieu sumartónleika sína ár hvert sem margir kannast við af YouTube, frá bíósýningunum eða bara að hafa verið þar í eigin persónu.


Dagskrá ferðarinnar í desember:


Fimmtudagurinn 11. desember 2025.

ICELANDAIR FI 554 til Brussel
Í loftið kl. 07:35.
Lent kl. 11:55.
Rúta til Maastricht, c.a. 1,5 klst ferð (innifalið).
Tékkað inn á Desigh Hotel Maastricht.
Frjáls dagur/kvöld

Föstudagurinn 12. desember

Frjáls dagur.


Húsið opnar þremur tímum fyrir tónleika og hægt að skoða jólamarkaðinn sem er þar innanhúss og notið matar og drykkja fyrir tónleikana.

Frá því augnabliki sem komið er inn í höllina tekur á móti gestum óviðjafnanleg jólastemning sannkallaðs vetrarundralands.

Jólaskreytingar í öllum hornum og sannkallaður jólalandi, snjór, tvö skautasvell, risa vetrarleikmynd, rómantísk lýsing, rauð teppi, óteljandi ljós, 150 glæsilegar ljósakrónur í lofti og yfir 50 feneyskir kertastjakar.

Tónleikadagskráin einkennist af yndislegum jólalögum, rómantískum völsum og fallegum lögum frá öllum heimshornum eins og Jingle Bells, Ave Maria, Oh Holy Night, Hallelujah, Sleigh Ride og mörg fleiri.

Einstök upplifun sem þú munt aldrei gleyma!

Sjá staðsetningu sæta okkar neðar á þessar síðu.

Laugardagurinn 13. desember
Tónleikakvöld, farið með rútu til MECC hallarinnar í Maastricht.
Rútuferðin tekur aðeins um 7 mín.
Tónleikarnir hefjast kl. 19:30 en mikil dýrð fylgir því að vera mætt tímanlega til hallarinar.
Klæðnaður gesta er "smart-casual" og það er ekki kalt í höllinni þó svo að það kunna að vera kalt í borginni á þessum árstíma.

Sunnudagurinn 14. desember
Rúta til Brussel, c.a. 1,5 klst ferð (innifalið).
ICELANDAIR FI 555 til Keflavíkur.
Í loftið kl. 12:50.
Lent kl. 15:20 á Íslandi.

Hótelið

Designhotel Maastricht

Designhotel er 4-stjörnu hótel, vel staðsett og steinsnar frá miðbæ Maastricht.

Það er í hluta borgarinnar sem kallast Wyck og þaðan er stutt í allt það helsta sem borgin hefur uppá að bjóða - sannkallaður miðpunktur.

Hótelið er 105 herbergja og er ekkert þeirra eins en í öllum þeirra er hugað til hins ítrasta í öllum smáatriðum.

Innan við 10 mínútna gangur á Vrijthof-torgið þar sem sumar-tónleikarnir fara fram utanhúss og á leiðinni eru tugir veitingastaða, verslana og iðandi mannlíf. Á jólatónleikum fer rúta með farþega okkar frá hótelinu og í höllina sem er rétt 10 mín rútuferð.

Morgunverður er innifalinn.

Skoða hótelið á netinu: Designhotel

Á hótelum erum tveggja manna herbergi: Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm). Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda. Þriggja manna herbergi er eingöngu ætlað fyrir tvo fullorðna sem sofa í sama rúmi og gest yngri en 14 ára sem sefur á beddanum. Þriggja manna herbergi eru alls ekki fyrir 3 fullorðna.

Verð

Verð frá 229.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi. Aukagjald vegna einbýlis kr. 76.900

Andre Rieu jólatónleikar - Staðsetning sæta

Sætin okkar eru í verðsvæði Rang 1 sem er appelsínugult á þessari skýringarmynd og við munum sitja í svæði P1 (sjá rauðan hring á mynd).
Sætin eru á mjög góðum stað.

Greiðslumáti

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.

Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.

Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Náist ekki lágmarksþátttaka endurgreiðum við að fullu það sem þegar hefur verið greitt.

ICELANDAIR

Flug með Icelandair ásamt sköttum.
23 kg innritaður farangur
10 kg handfarangur samkvæmt skilmálum Icelandair.

Fararstjóri

Fararstjóri frá Visitor

Með í ferðinni er fararstjóri frá Visitor sem innritar farþega á hótel, dreifir miðum á leikinn/tónleikana og er farþegum innan handar með allt sem þarf.

Visitor

Hamraborg 20A

200 Kópavogur

Sölu og þjónustuver: 578 9888

Netfang: fyrirspurn@visitor.is

Hópferðir: hopar@visitor.is

Skráðu þig á póstlista visitor

© 2025, Visitor ferðaskrifstofa

/Skilmálar/Persónuverndarstefna