Endurmenntunarferð félagsráðgjafa til Berlínar
Ferðin
STYRKHÆF FERÐ FRÁ STÉTTARFÉLAGI
Ferðin er frá miðvikudeginum 8. október til til sunnudagsins 12. október 2025.

Félagsráðgjafaferð til Berlínar - DAGSKRÁ
Endurmenntunarferð sem er sérstaklega búin til fyrir starfsmenn í velferðar- og félagsþjónustu. Ferðin uppfyllir kröfur stéttarfélagana um endurmenntunarstyrk.
Í ferðinni kynnumst við flóttamannabúðum sem eru starfræktar á fyrrum flugvallarsvæði.
Við fáum kynningu á starfi fyrir heimilislausa í borginni.
Heimsækjum starfsstöð sem sérhæfir sig í að virkja fólk sem er utan vinnumarkaðarins.
Innifalið í ferðinni:
- Flug og hótel í 4 nætur.
- Akstur til og frá flugvelli.
- Endurmenntunarprógram (12 klst). Fylgd og túlkun.
- 1 x hádegismatur.
- 1 x 2 klst skoðunarferð með Berlínum á komudegi.

Hótelið

Holiday Inn Express Alexanderplatz Berlin
Holiday Inn Express® Berlin- Alexanderplatz er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá Alexanderplatz og rétt lengra að rölta í verslanir og kaffihús í Hackescher Markt.
Ráðstefnuhöllin í Messe Berlin eru í rétt um hálftíma fjarlægð með lestinni og c.a. 40 mín frá Berlínarflugvelli. Lista- og fornminjasafn á heimsmælikvarða er í glæsilegum byggingum á Safnaeyju í nágrenninu, en Brandenborgarhliðið, Minnisvarði Berlínarmúrsins og Helfararminnisvarðinn eru í 15 mínútna fjarlægð með lestinni. Sem sagt vel staðsett og snyrtilegt hótel á góðum stað í gamla austur hluta þessarar sögufrægu borgar.
Verð
Verð á kr. 199.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi. Aukagjald vegna einbýlis kr. 49.900.
Greiðslumáti
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Náist ekki lágmarksþátttaka endurgreiðum við að fullu það sem þegar hefur verið greitt.
FLUGFÉLAG: PLAY

Flogið með PLAY.
INNIFALIÐ:
20 kg. innritaður farangur
Lítill handfarangur sem passar undir sæti.
Stærri handfarangurstösku þarf að greiða aukalega.
Séróskir um sætaval þarf einnig að greiða aukalega.
Fararstjóri

Berlínur
Íslensku Berlínurnar í Berlín verða fararstjórar. Berlínur er fyrirtæki rekið af íslenskum konum búsettum í Berlín. Fyrirtækið hefur starfað í rúmlega tíu ár og á þeim tíma tekið á móti þúsundum Íslendinga bæði í skoðunarferðir um borgina en einnig skipulagt endurmenntunarferðir fyrir margar og ólíkar starfsstéttir. Okkar sérstaða í skipulagninu endurmenntunarferða eru tengsl okkar við borgina og þekking.