Fluguveiði í Slóveníu

Ferðin

Fluguveiði í Slóveníu – ævintýrið er framundan
29. ágúst til 2. september.


Það er einstakt að kasta flugu fyrir fisk í Slóveníu. Náttúran og umhverfi veiðinnar er algerlega magnað.
Búðu þig undir að setja í fisk í hverju kasti!

Þú veiðir í þrjá heila daga og deilir ekki stöng með öðrum.

Veitt er á ýmsum stöðum í Slóveníu og ákveða gædarnir okkar á hverjum morgni hvert best er að fara, upp á að veiðilíkurnar séu alltaf hámarkaðar. Þú mátt búast við að setja í nokkrar ólíkar tegundir fiska; staðbundinn urriða, regnbogaurriða, marmaraurriða og grayling.

2-4 stangir fara með hverjum gæd – og fara gædarnir með sína hópa á ólíka staði. Lagt er af stað í veiðina um kl. 8 á hverjum morgni og veitt er inn í sólarlagið. Ekki þarf að taka pásu yfir daginn en að sjálfsögðu þarf að næra sig og þá er farið á nærliggjandi veitingastaði.

Við getum ekki lofað þér ótal fiskum en við getum lofað þér ógleymanlegri veiðiupplifun!

Já, og eitt enn.
Veitt er með agnhaldslausum flugum og öllum fiski sleppt.


Hvar er gistingin?
Gist er á hóteli í miðbæ Ljubljana. Ef þreytan er ekki of mikil eftir veiði dagsins er gaman að rölta um í gamla bænum í þessari fallegu borg og fá sér ljúffengan kvöldmat á einum af fjölmörgum veitingastöðum borgarinnar. Að gista í Ljubljana er alger aukabónus við þessa ferð.

Hvað er innifalið:
Flugur
Taumar
Tökuvari
Gædar
Veiðileyfi
Akstur á veiðisvæði
Gisting í Ljublijana með morgunmat

Hvað er ekki innifalið:
Flug
Akstur til og frá flugvelli
Hótelskattur sem greiðist á staðnum
Matur í hádeginu og á kvöldin



Hvað þarf ég?
Það eru auðvitað einhverjir hlutir sem fólk vill og þarf að taka með sér.
Við mælum þó með að ferðast eins létt og hægt er!

Veiðistöng
Okkar reynsla er sú að best er að veiða með stöng #4 eða #5. Ef þú átt ekki slíka stöng þá er ekkert mál að vera með þá sem þú átt. Vatnið þarna er mjög tært og því þarf að vera með mjög létta tauma. Stórar stangir auka líkurnar á að slíta tauminn í miðjum bardaga. Þú mátt sem sagt skilja Svartan Toby og kaststöngina eftir heima.

Veiðihjól + flotlína
Það þarf að taka með sér veiðihjól með flotlínu eða mjög hægsökkvandi.

Vöðlur + vöðluskór
Það er ágætlega heitt á þessum tíma en það getur líka verið ágætt að taka föðurland eða hlýjan veiðijakka, hanska og húfu.

Möst veiðidót
Við mælum með því að ferðast sem léttast, en auðvitað er persónulegt hvað hver og einn vill taka með sér í veiðiferðir. Veiðigleraugu, vesti og fleira til að taka með sér er auðvitað leyfilegt.

Valfrjálst: Flugur + Taumar
Einhverjir hafa vilja að prófa Black Ghost eða Rauðan Francis eða annað íslenskt fiskanammi auk þess sem það er gott að vera með taum (2-4 punda) á sér, ef gædinn er að vesenast einhverstaðar.
Um að gera að taka með sér flugubox með flugum til að prófa.
En hafa í huga reglurnar um agnhaldslausa króka, það er tekið mjög strangt á því í Slóveníu.

SÆKJA BÆKLING - SMELLA HÉR

Hótelið

CITY HOTEL LJUBLJANA ****

Nafnið segir allt, City Hotel Ljubljana er í hjarta borgarinnar. Vingjarnlegt og umhyggjusamt starfsfólk, rólegt umhverfi og nýuppgerð herbergi sem leggja áherslu á tengslin milli borgarinnar og hótelsins með röð svart-hvítra mynda út um allt hótel af Ljubljana sem skapa sannkallaða borgarstemningu. Lokaðu dyrunum að herberginu þínu, slakaðu á skilningarvitunum og leyfðu þér að hvíla þig eftir heilan dag í að skoða menningarleg kennileiti, kaffihús og afþreyingu af spennandi næturupplifunum.
Slappaðu af á City Hotel í hjarta borgarinnar.

Verð

Verð frá 260.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.

Greiðslumáti

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.

Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.

Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.

Visitor

Hamraborg 20A

200 Kópavogur

Sölu og þjónustuver: 578 9888

Netfang: fyrirspurn@visitor.is

Hópferðir: hopar@visitor.is

Skráðu þig á póstlista visitor

© 2024, Visitor ferðaskrifstofa

/Skilmálar/Persónuverndarstefna